http://www.52.is/


LP international Poland latinoamerica Iceland    Hafa samband            Notendur: 29 Virkir, 10 Skráðir inn - Klukkan er: 15:11

PCA Updates

Nýr á 52.is? Skráðu þig hér, ókeypis!
Forsíða spjallborðs > Póker fréttir
magnusvalur   Iceland. Jan 16 2012 23:15. Athugasemdir 915



Eitt stærsta mót ársins PCA fór fram á Bahama eyjum nú fyrir stuttu og ætla ég að fara yfir niðurstöðuna í stærstu mótunum.

Opnunarmótið var 100 þúsund dollara super high roller sem innihélt 32 þátttakendur sem voru reiðubúnir að greiða þessa gríðarlegu fjárhæð. Það er skemmtilegt að fyrsti maður sem tapaði stakknum sínum var WSOP meistarinn Jonathan Duhammel og High stakes gamblarinn og viðskiptamaðurinn Bill Perkins sem við könnumst við úr High stakes Poker. Þar sem þáttakan var ekki það mikil þá var boðið uppá Second chance í þessu móti og tóku þessir tveir báðir rebuy en þeir voru þeir einu tveir sem gengu svo langt.

Á degi tvö var spilað niður í 8 manna lokaborð og á því sátu stór og þekkt nöfn.

1. Humberto Brenes með 343k chips
2. Scott Seiver með 556k chips
3. Daniel Neagreanu með 1.230 k chips
4. Jonathan Duhammel mel 1.336k chips
5. Mike "Timex" Mcdonald með 360k chips
6. Dan Shak með 1.199 k chips
7. Viktor "isildur1" Blom með 1.228k chips
8. Galen Hall með 1.748k chips

Main event meistarinn frá því í fyrra Galen Hall byrjaði því með chipleadið en eins og sjá með voru stór nöfn við lokaborðið. 5 sæti voru borguð og var Hákarlinn Humberto Brenes fyrsti maður til að bíta rykið. Í kjölfarið fylgdi Mike McDonald og Scott Seiver var sá loftbólustrákurinn.

Daniel Neagreanu sem endaði í öðru sæti í þessu sama móti í fyrra min cashaði fyrir litlar 250 þúsund dollara og Jonathan Duhammel endaði í fjórða sæti og fékk 350 þúsund dollara. Báðir enduðu þeir 150 þúsund dollara í plús enda tók Duhammel second chance. Galen Hall endaði svo í þriðja sæti og því Dan Shak og Viktor Blom sem enduðu í heads up fyrir titilinn.

Heads upið var nánast einstefna þar sem Dan Shak náði einungis að raka inn nokkrum litlum pottum á meðan hann tapaði þeim stóru gegn hinum ofur aggressífa svía. Það var því Viktor Blom sem stóð uppi sem sigurvegari í þessu stórskemmtilega móti og fékk fyrir vikið 1.2 milljón dollara en þetta var hans fyrsta stórmót live sem hann tekur niður en hann er að sjálfsögðu þekktastur fyrir high stakes online spilun við Durrr, Patrik Antonius og fleiri.


Þá var komið að hinu stórskemmtilega Main eventi þar sem 1072 þátttakendur tóku þátt. Eftir fyrstu tvo dagana voru lítt þekkt nöfn sem voru með forystu en á degi þrjú og fjögur fór "Klósettið" Faraz "toilet" Jaka hamförum og tók örugga forystu í mótinu. Maðurinn var gjörsamlega óstöðvandi en forystan dvínaði á degi fimm þar sem hann náði ekki að bæta stakkinn sinn mikið frá deginum áður. Flest stóru nöfnin voru fallin fyrir dag fimm og þrjú borð voru eftir. Á degi fimm var spilað niður á lokaborð sem var eftirfarandi.

1. Mark Drover 1.430k chips
2. Anthony Gregg 1.160k chips
3. David Bernstein 1.960k chips
4. Ruben Visser 4.400k chips
5. Faraz Jaka 6.470k chips
6. John Dibella 3.460k chips
7. Xuan Liu 6.355k chips
8. Kyle Julius 6.455k chips.

Ruben Visser var fyrsti maður út og Bernsten og Gregg fylgdu í kjölfarið. Þriðji shorstakkinn sem hóf borðið Mark Drover var sá fjórði út og þá stóðu eftir fjórir. Jaka, Dibella, síðasta konan Xuan Liu og Kyle Julius. Julius hafði örugga forystu á meðan Liu var shorstakkinn. Klósettið Jaka hafði verið í rússibanareið með stakkinn sinn hluta lokaborðsins tók svo Liu út þegar hann kallaði Liu sem hafði farið allinn frá button og Jaka kallaði í bb. Liu var með a6 gegn a7 hjá Jaka og 7 smellti sér á floppið sem gerði útum vonir Liu. Jaka náði sér í chiplead á meðan Dibella var shorstakkinn. Lítið var um 3bet á lokaborðinu en eitt slíkt átti eftir að verða Jaka afdrífaríkt þegar hann 5bett shovaði úr sb yfir button raise frá Julius. Jaka var með KJ gegn AK hjá Julius. Stuttu seinna datt Jaka út með aj gegn K10 hjá Julius.

Headsupið var svo á milli Julius og John Dibella þar sem þeir gerðu deal á milli sín og tryggðu sér því 1,5 milljón dollara hvor og spiluðu uppá seinustu 300 þúsundin þar sem John Dibella hafði betur eftir skemmtilegt heads up. Þess má til gamans geta að David Bernstein sem datt út í 7.sæti hafði unnið freeroll mót inní main eventið og endaði með því að casha 250 þúsund dollurum. Ekki slæmt að breyta engu í rétt um 30 milljónir miðað við gengi dagsins.

Seinasta stóra mótið var 25 þúsund dollara high roller

Á lokaborðinu í því móti mátti sjá nokkur kunnuleg nöfn meðal annars stærðfræði séníinn Ike Haxton, internetnördinn Nananonoko og heimsmeistarann Jonathan Duhammel sem var án nokkurs vafa maður PCA mótanna en hann fór einnig á lokaborð í amk 2 öðrum mótum sem ekki koma fram í þessari umfjöllun.

1. Isaac Haxton 762k chips
2. Leonid Bilokur 1.139k chips
3. Randy "nananonoko" Lew 197k chips
4. Jonathan Duhammel 1.530k chips
5. Nicholas Fierro 1.181k chips
6. Jason Koon 1.646k chips
7. Michael Telker 397k chips
8. Govert Metaal 545k chips.

Það var heimsmeistarinn í fjöldi borða spiluðum í einu á netinu. Randy Lew sem var fyrstur til að yfirgefa lokaborðið þrátt fyrir að hafa náð að dobbla sig upp snemma á lokaborðinu og Telker og Metaal duttu út stuttu síðar. Eftir að þeir duttu út hófst svakaleg barátta þar sem enginn datt út í langan tíma og stakkurinn hjá Duhammel fór upp og niður og aftur upp í chiplead. Nicholas Fierro datt þá út í fimmta þegar tvistarnir hans náðu ekki að krakka tíupar Ike Haxtons. Ekki löngu á eftir datt Fierro út þegar A4 Koons náðu ekki að hitta gegn KK hjá Duhammel eftir 5 bet ship frá Koon.

Ike Haxton datt svo út í þriðja sæti þegar hann fjórbett shovaði KQ gegn AJ hjá Duhammel og ásinn hár hélt. Duhammel var því með 6 á móti 1 chiplead þegar heads up ið byrjaði og því í góðum málum að ná sér í stóran titil. Hinsvegar fór Duhammel að reyna yfirspila Bilokur fullmikið og fékk að gjalda þess. Í lokahöndinn 4 bet shovaði Duhammel Bilokur með K4 og fékk kall frá A7 hjá Bilokur. Ás á floppinu batt enda á vonir Duhammel og Leonid Bilokur því 25k high stakes meistarinn á PCA þetta árið.


I hate to fold a pair 

 


Höfundaréttur © 2012. 52.is Allur réttur áskilinn
Hafa samband Leiðarvísir