http://www.52.is/


LP international Poland latinoamerica Iceland    Hafa samband            Notendur: 27 Virkir, 10 Skráðir inn - Klukkan er: 15:02

Íslandsmótið í Póker 2011-dagur 3 bein textalýsing

Nýr á 52.is? Skráðu þig hér, ókeypis!
Forsíða spjallborðs > Póker fréttir
 1 
  2 
  > 
  Allt 
taqtiX   Iceland. Nóv 06 2011 11:55. Athugasemdir 1356



Borðaskipan
Sætaskipan fyrir dag3 er að finna hér

Mótið hefst kl 13:00 samkvæmt dagskrá. Ragnhildur byrjar daginn í forystunni en hún er eina konan sem eftir er í mótinu.

11:56 - Smá seinkun
Steini var að tilkynna salnum að það verði smá seinkun. Vegna miskilnings þá héldu margir að mótið myndi hefjast kl 14:00, en þá mun hliðarmótið byrja. Verið er að hafa samband við mennina sem vantar.

Stærstu staflarnir

Ragnheiður Sigurðardóttir 713.300
Rögnvaldur Skúlason 477.100
Júlíus Jakobsson 390.000
Ólafur Sigurðsson 389.000
Hafþór Sigmundsson 369.500
Örn Þórsson 367.700
Þórhallur Gíslason 283.000
Hákon Hrafnsson 275.300


Ragnheiður

13:09 - Fyrsti maður út í dag
Halldór Hrafn fer allin fyrir 29500 og fær call frá Hunter á button. Halldór með QQ á móti AK hjá Hunter. K á turn og Halldór Hrafn út.

13:17 - Óskar Hlíðberg að krippla Daníel Má
Peningurinn fer inn fyrir floppið, Danni með AJ á móti 66 hjá Óskari. Flop 699. Danni á 45k eftir.

13:18 - Daníel Már dottinn út
Danni shippar utg og fær kall frá sb. Danni með A9o á móti AKs. Borðið rennur út og Daníel Már er út úr mótinu. Einn sterkasti spilarinn í mótinu er dottinn út í 33. sæti.

13:20 - Chipcount fyrir daginn
Eiríkur Garðar Einarsson - 202400
Daníel Már Pálsson - 98400
Guðmundur Auðun Gunnarsson - 93100
Sævar Ingi Sævarsson - 62800
Arnar Björnsson - 218500
Sindri Björnsson - 295400
Valtýr Björgvinsson - 135600
Kjartan Bergur Jónsson - 86500
Örvar Bjartmarsson - 130400
Kristinn V. Ísaksson - 37700
Andrés Vilhjálmsson - 99800
Þórhallur Gíslason - 283000
Ólafur Sigurðsson - 389000
Óskar Hlíðberg - 47400
Hlynur Árnason - 114900
Hákon Hrafnsson - 275300
Davíð Ólafsson - 150500
Hlynur Sverrisson - 123900
Arnar Snorri Gíslason - 121700
Hrannar Eysteinsson - 109000
Steinar Bragi Sigurðsson - 103200
Lúðvík Kemp Guðmundsson - 115300
Ragnheiður Sigurðardóttir - 713300
Hörður Helgi Hallgrímsson - 128300
Ágúst Karl Arnarsson - 62500
Júlíus Jakobsson - 390000
Kristinn Pétursson - 71000
Gestur Valur Svansson - 88000
Rögnvaldur Skúlason - 477100
Örn Þórsson - 367700
Hafþór Sigmundsson - 369500
Davíð Kr. Guðmundsson - 147900
Halldór Hrafn Jónsson - 29900

13:22 - Spilapeningarnir fljúga og annar maður dottinn út
Við komum að borðinu þegar Arnar Snorri og Ragnheiður er í potti. Floppið er J24, peningarnir fara inn. Arnar sýnir KK og Ragnheiður JJ og borðið rennur út og Arnar Snorri út úr mótinu. Ragnheiður heldur áfram að crusha mótið.

13:24 - Gestur Valur dottinn út
Fréttaritari hefur ekki við actioninu í dag en Gestur Valur var að detta út. Kom að borði þar sem floppið er 84x, peningarnir fara inn, Gestur Valur með Q8 á móti Hafþóri sem var með QQ, borðið rennur út og Gestur út. Á meðan þetta er skrifað þá dobblar Kjarri sig upp.

13:27 - Sævar Ingi dottinn út
Þakið að rifna á Hótel Örk útaf gígantísku actioni. Sævar limpar pre og annar kallar. Arnar Björnsson setur í 11k og Sævar shippar 55k betur, Arnar kallar. Sævar með AKo á móti 88 hjá Arnari. Flop var blank fyrir Sævar, 8 á turn og Sævar drawing dead og er út úr mótinu.

13:30 - Anton er út
Peningarnir fara allin pre á móti. Arnar Björnsson með 88 og Anton með AA. Arnar hittir aftur sett og tekur annan mann út. 28 manns eftir og það er bókstaflega verið að hrinda fólki út úr húsinu. 3 í pening.

13:33 - Kristinn að detta út. 27 manns eftir
Það er foldað að Krissa í sb sem er short, hann shippar og Örvar kallar í BB. Örvar með A6o og Krissi með 109o. Floppið kemur 1082 og útlitið gott fyrir Krissa. Turnið er hinsvegar A og riverið blank þannig Krissi dettur út í 28. sæti. Sameining á borðum þar sem það eru 27 eftir í mótinu, 1 út í viðbót og þá byrjar bubblan.

13:47 - Hlynur Árnason dottinn út. Bubblan byrjuð
Peningurinn fyrir inn fyrir floppið. Hlynur með 1010 og Rögnvaldur með AA. Borðið rennur út og Hlynur dettur út í 27. sæti. Steini var að tilkynna í hljóðkerfinu að nú væri spilað Hand-for-hand. Þetta verður spennandi.

13:55 - Bubblan sprungin
Það kemur raise early upp í 8k, Rögnvaldur kallar og Davíð shippar í bb. Upprunalegi raiserinn foldar og Rögnvaldur kallar. Davíð sýnir AQo og Rögnvaldur sýnir AK. Það safnast allir spilarar og áhorfendur við borðið. Borðið rennur út og Davíð er bólustrákurinn í ár.

Lúlli að tvöfalda sig
Kristinn raisar í MP upp í 8k, Lúlli setur í 22k í LP, Kristinn fer allin fyrir 101k, Lúlli hugsar sig um í ca. 3 mínútur og kallar svo. Kristinn sýnir KK og Lúlli sýnir AK. Floppið er fallegt fyrir Lúðvík AA6 og Kristinn drawing dead. Kristinn kripplaðist við þessa hönd og Kristinn dettur út í næstu hönd með K10 á móti J9.

Hrannar Eysteinsson er út
Hrannar opnaði í 8k og fær call frá Andrés á button. Flop kom 8s8d5c, hrannar shippar 80k og Andrés callar með 9d9h og Hrannar sýndi Qs5d og borðið rann út og Hrannar datt því út í 24.sæti.

Menn eru að hrynja út og eru 11 dottnir út og level 1 er ekki búið

14:10 - Hörður Helgi dottinn út
Hörður átti 16k eftir þegar hann tapaði með 77 á móti A9 á 965 floppi. Það var svo í næstu hönd þegar hann datt út með KK á móti A8s hjá Ragnheiði.

14:21 - Kjartan að plata
Hlynur hækkar fyrir flop, Kjarri kallar. Flop QQ8. Hlynur bettar 12,5k og Kjarri raisar í 30k og Hlynur fer í tankinn og foldar. Kjarri snýr við 67 í tígli og segir: "Ég elska þessa hönd"

14:25 - Davíð Ólafsson út
Davíð endar allin short með A9 á móti AQ og borðið hjálpar honum ekki og hann dettur út.

14:43 - Örvar og Sindri í karlmennskustríði
Ég kem að borðinu hjá Örvari og Sindra þar sem potturinn er ca. 40k floppið er J52 rainbow. Turn kemur A, Örvar checkar og Sindri bettar 20k, Örvar hugsar smá og kallar. River kemur Q, Örvar checkar, Sindri bettar 40k, Örvar hugsar í smástund og kallar. Sindri segir K hi og Örvar snýr við 1010

Blindarnir hækka í 2000/4000 ante 500

14:54 - Kjarri að tvöfalda sig
Arnar Björnsson hækkar í 11k, Kjarri er á button og segir að hann sé orðinn pirraður á þessu drasli og að hann sé all-in. Arnar biður um talningu og á meðan gjafarinn er að telja stakkinn hans Kjarra þá fara orðaskipti á milli þeirra. Arnar spyr til dæmis hvort hann sé sterkur, Kjarri segir "70 í bekk", Arnar segir "það er nú ekki mikið", þá segir Kjarri "en ég er ríkur". Gjafarinn tilkynnir að hann eigi 117k í viðbót, Arnar hugsar eitthvað og Kjarri segir við hann að hann nenni ekki að tala við hann lengur ef hann ætlar ekki að kalla. Eftir smá umhugsun þá kallar Arnar. Kjarri sýnir QQ og Arnar sýnir JJ. Flop kemur Q87 og borðið rennur út og Kjarri kominn í ca. 245k

Myndir
+ Sýna spoiler +



15:08 - Ágúst Karl dottinn út
Ágúst var orðinn short og skipaði öllum spilapeningunum inn fyrir floppið og fær kall. Ágúst snýr við QT í laufi og andstæðingur hans (sá ekki hver það var) sýnir A9 í tígli. Borðið rennur út og hvorugur hittir og Ágúst dettur út í 21. sæti.

15:30 - Örvar kominn á skrið
Örvar sem lenti í 3.sæti á íslandsmótinu í fyrra er kominn á skrið og er kominn yfir 550k í stack, hann byrjaði daginn með rúm 100k og er búinn að vera að spila vel. Hann og Sindri ís eru búnir að vera í "stríði" þar sem Örvar er búinn að koma út sem sigurvegari í flest skipti. Sindri er að spila mjög vel líka og er búinn að reyna að taka góð blöff á Örvar sem er búinn að sjá í gegnum þau flest, því miður fyrir Sindra sem er einn af bestu "unknown" spilurum landsins.

15:36 - Sindri ís dottinn út
Sindri setur í 11k í middle position og Örn Þórsson setur 19k betur, foldað að Sindra sem fer allur inn fyrir um 100k total og Örn Þórsson callar. Sindri sýnir KsKd og Örn TdTh. Flopp kom niður Ts6dTc og Örn floppar fernu, það heldur til mikillar undrunar og Sindri dettur út og fær rétt um 120.000kr.- fyrir erfiðið. Sindri var búinn að spila mjög vel í mótinu en það leit út fyrir að ekkert hafi gengið upp hjá honum í dag.

16:01 - 19 spilarar eftir
Chippað verður upp og dregið á ný borð þegar 18 spilarar eru eftir. Ragnheiður er með forystu í mótinu með 1.032.500. spilapeninga.

Athugið að á facebook síðu PSÍ koma einnig inn myndir og myndbönd. Sjá hér https://www.facebook.com/pokersamband

16:14 - 2 stórar hendur
Það var allin á tveimur borðum. Á öðru borðinu var Eiríkur all-in fyrir 50k og Lúlli kallaði. Eiríkur var með AJ á móti A10 og vann. Á hinu borðinu voru Guðmundur Auðun og Hlynur all-in fyrir floppið. Guðmundur var með QQ og Hlynur var með KK. Floppið var J62, turn Q og river 9 og Guðmundur er kominn í ca. 370k

17:05 18 manns byrja eftir break

Stakkastærðir

Borð 1

Guðmundur Auðunn Gunnarsson 343.000
Júlíus Jakobsson 427.000
Ragnheiður Sigurðardóttir 1.032.500
Valtýr Björgvinsson 292.500
Rögnvaldur Skúlason 653.000
Ólafur Sigurðsson 592.500
Andrés Vilhjálmsson 134.500
Steinar Bragi Sigurðsson 114.000
Hafþór Sigmundsson 392.500

Borð 2

Örn Þórsson 557.500
Hlynur Sverrisson 170.000
Óskar Hlíðberg 375.000
Arnar Björnsson 254.000
Lúðvík Kemp 92.500
Kjartan Bergur Jónsson 214.000
Hákon Ólafur Hrafnsson 98.000
Örvar Bjartmarsson 454.000
Eiríkur Garðar Einarsson 89.500

17:10 Staðan eftir chipcounts

1. Ragnheiður Sigurðardóttir 1.032.500
2. Rögnvaldur Skúlason 653.000
3. Ólafur Sigurðsson 592.500
4. Örn Þórsson 557.500
5. Örvar Bjartmarsson 454.000
6. Júlíus Jakobsson 427.000
7. Hafþór Sigmundsson 392.500
8. Óskar Hlíðberg 375.000
9. Guðmundur Auðunn Gunnarsson 343.000
10. Valtýr Björgvinsson 292.500
11. Arnar Björnsson 254.000
12. Kjartan Bergur Jónsson 214.000
13. Hlynur Sverrisson 170.000
14. Andrés Vilhjálmsson 134.500
15. Steinar Bragi Sigurðsson 114.000
16. Hákon Ólafur Hrafnsson 98.000
17. Lúðvík Kemp 92.500
18. Eiríkur Garðar Einarsson 89.500

Steinar Bragi dottinn út
Steinar Bragi 4-bet shippar 108k með KsKd og fær call frá QdQc.

Qh Kemur á turn sem sendir Steina Braga heim í 18.sæti

Kjartan Bergur dottinn út
Utg+2 setur í 14k (blindarnir eru 2,5k/5k ante 500), foldað að Kjarra sem fer all-in fyrir 214k, utg+2 callar. Kjarri sýnir 3s3c og utg+2 sýndi AsAd Borðið kom niður 8dTs7c9d2s og Kjarri dottinn út í 17.sæti

Lúlli dottinn út
Lúlli fer allur inn fyrir 58,5k, Hákon kallar. Lúlli sýnir Ac4c og Hákon sýnir TsTh. Borðið kemur Kh9s7c3s3d og Lúlli út í 16. sæti.

Arnar Björnsson dottinn út
Örn Þórsson hækkar í 13k í cutoff og Arnar fer allur inn í bb fyrir 120k samtals og Örn kallar. Örn sýnir AhAd og Arnar sýnir 8s8d. Borðið kemur Kd5c7h 9h Th og núna erum 14 eftir. Það verður spilað þangað til það verða 9 eftir.

18:04 - Andrés doublar sig upp
Andrés fer all-in fyrir 52k og fær call frá Erni. Andrés sýnir AsJd og Örn sýnir AdTs. Engin Tx kemur í borð og Andrés því kominn í rúmlega 100k

18:09 - Andrés kemst í enn stærri stack

Andrés setur í 12k, sb og bb callar.

Flop kemur
Ts5c7s

Allir checka

Turn kemur
8s

Hlynur bettar 20k, bb callar og Andrés callar

River kemur
9h
Hlynur og bb checka og Andrés fer all-in fyrir 89k, Hlynur fer all-in á eftir honum og bb foldar

Andrés sýnir QsJh og Hlynur muckar sem er kominn niður í 49k eftir höndina

Ragnheiður
Ragnheiður sem er búin að vera chipleader meira eða minna allt mótið er ennþá chipleader með yfir milljón í chips. Það var mjög skemmtileg saga á bakvið hvernig hún komst í mótið. Það voru synir hennar tveir sem unnu sér inn einn auka miða í undanmótunum sem haldin voru útum allt rétt fyrir mót og í staðinn fyrir að selja þennan auka miða að þá ákváðu þeir að leyfa mömmu sinni að fá hann og reyna fyrir sér í stærsta móti sem haldið er á Íslandi. Hún er heldur betur að sanna fyrir okkur að hver sem er getur farið alla leið.



Örvar
Örvar lenti í 3.sæti á íslandmótinu í fyrra og er aftur kominn djúpt í ár, þessi drengur er ótrúlegur. Það yrði ótrúleg saga til að segja ef hann kemst jafn langt aftur í ár eins og í fyrra. Hann er án alls efa einn af betri spilurum sem eftir er ef ekki sá besti.



18:30 - Hákon dottinn út

Óskar Hlíðberg setur í 16k utg, foldað að Hákoni sem fer all-in fyrir 104,5k og Óskar callar.

Óskar sýnir 7c7s
Hákon sýnir AhQh

Borðið kemur niður 8c6s2dTs5s sem þýðir að Hákon datt út og Óskar bætti yfir 100k á staflann sinn. Eins manns dauði er annars manns brauð

Örvar bluffar/lýgur
Eins og örugglega flestir sem hafa horft á gömlu spagettívestrana "vita (halda)" að póker er ekki bara hversu heppinn þú ert eða hversu góða hönd þú ert með heldur eru það "blöffin" sem eru það allra heilagasta (fyrir utan að halda pokerface). Örvar sýndi eitt svoleiðis dæmi.

Örvar setur í 15k á button eftir að það var foldað til hans. Örn setur í 40k úr stóra blind og Örvar jafnar.

Flop
2s3dQs

Örn veðjar 50k og Örvar jafnar

Turn kemur Jd

Þeir checka báðir

River kemur 8d

Örn checkar og Örvar bettar 90k, Örn foldar og Örvar sýnir AsTs fyrir Ace high





Tilvonandi "fyrrverandi" íslandsmeistarinn í póker

Stefán sem hefur haldið titlinum "íslandsmeistarinn í póker" fer bráðum að breytast í "fyrrverandi íslandsmeistarinn í póker" fylgist með af kappi og reynir að sjá fyrir sér hver verður hans arftaki.



Mikil vinna

Það hefur farið mikil vinna af hálfu stjórnenda pókersambandsins í að gera íslandsmótið flottara en í fyrra og reynt að bæta það sem bæta mátti sem hefur verið mjög erfitt en að okkar mati tekist ágætlega til enda mjög vel að móti staðið í fyrra líka. Þessi vinna heldur áfram þótt líða fer að lokum í þessu móti. Steini er að sjá um mótið, Viktor er að sjá um textalýsinguna. Eirný er að raða upp notuðum stokkum og svo er Arnór að skrifa niður allt sem gerist á borðunum hérna.









Hlynur Sverrisson dottinn út
Hlynur var með mjög lágan stafla og hrinti inn síðustu 24.000 chipsunum sem hann átti eftir. BB jafnaði.

Hlynur AhQh
BB AsAd

Borðið rennur út og Hlynur endar i 13.sæti sem er mjög góður árangur og svekkjandi að komast ekki lengra. Þessi drengur hefur framtíðina fyrir sér þar sem hann komst einnig í pening í íslandsmótinu í fyrra.

Ekki alltaf "pokerface" og alvarleiki

Það er mismunandi hvernig menn nálgast svona stórt mót þar sem miklir peningar eru undir. Sumir vilja sofa lengi, borða hollt og drekka vatn allt mótið með góðri róandi tónlist undir en það eru hins vegar ekki allir þannig.









Örvar tekur góðan pott
Óskar Hlíðberg setur í 16k utg, foldað að Örvar sem jafnar úr cutoff.

Flop
Tc9dQc

Óskar setur út 21k og Örvar jafnar.

Turn
5d

Óskar checkar og Örvar skýtur út 43k og Óskar jafnar.

River
5s

Þeir checka báðir og Örvar sýndir Ts9s og vinnur pottinn, hann er kominn með um 600k fyrir framan sig.

Það eru 12 spilarar eftir

Spilararnir eru farnir í matarhlé og við höldum áfram þessari æsispennandi fréttalestri í íslandsmótinu.

Chipcount

Borð 1

Sæti 1 - Guðmundur Auðunn - 522k
Sæti 2 - Júlíus Jakobsson - 566k
Sæti 3 - Ragnheiður Sigurðardóttir - 926k
Sæti 5 - Rögnvaldur Skúlason - 810k
Sæti 6 - Ólafur Sigurðsson - 373k
Sæti 9 - Hafþór Sigmundsson - 495k

Borð 2

Sæti 1 - Örn Þórsson - 658k
Sæti 2 - Valtýr Björnsson - 116k
Sæti 3 - Óskar Hlíðberg - 723k
Sæti 4 - Andrés Vilhjálmsson - 171k
Sæti 8 - Örvar Bjartmarsson - 602k
Sæti 9 - Eiríkur Garðar Einarsson - 219k

---------------------

1. Ragnheiður Sigurðardóttir - 926.000
2. Rögnvaldur Skúlason - 810.000
3. Óskar Hlíðberg - 723.000
4. Örn Þórsson - 658.000
5. Örvar Bjartmarsson - 602.000
6. Júlíus Jakobsson - 566.000
7. Guðmundur Auðunn - 522.000
8. Hafþór Sigmundsson - 495.000
9. Ólafur Sigurðsson - 373.000
10. Eiríkur Garðar Einarsson - 219.000
11. Andrés Vilhjálmsson - 171.000
12. Valtýr Björnsson - 116.000

Christian Bale að spila íslandsmótið?





20:25 - Spilarar byrjaðir aftur eftir matarhlé

12 spilarar eftir. Avarage er 517.500. Blindar eru 4000/8000 og ante er 1000kr.

20:34 - Guðmundur Auðunn að taka fínan pott
Hafþór hækkar undir byssunni í 21k, Guðmundur kallar og Rögnvaldur kallar í sb. Flop kemur Kd8s9d. Það er check-að að Guðmundi sem bettar 28k, Rögnvaldur kallar og Hafþór foldar. Turn kemur 6c, check-a báðir. River kemur 4c. Guðmundur bettar 33k og Rögnvaldur kallar. Guðmundur sýnir KcQc og tekur pottinn.

20:39 - Eiríkur Garðar dottinn út í sjúkum potti
Örvar setur í 19k, Eiríkur fer allur inn fyrir 98k og Valtýr fer allur inn á eftir honum fyrir 93k og Örvar kallar þá báða:
Örvar: 6h6c
Valtýr: 9d9h
Eiríkur: KsQs
Borðið kemur:
6d5h3c
Turn kemur:
Th
River kemur:
9c
Valtýr vinnur pottinn með river-uðu setti og er kominn í kringum 300 þúsund. Örvar dottinn niður í 600 þúsund aftur eftir að hafa verið kominn yfir 700 þúsund.

20:43 - Það er líka líf á borði 1
Komið að borðinu á turni og borðið er 4d7sAh 8s Júlíus setur 21k og Hafþór kallar. Riverið kemur 6d og Júlíus setur 70k og Hafþór kallar. Júlíus sýnir As8h fyrir hæstu tvö pörin og Hafþór mökkar.

20:57 - Riverhetjan Örvar
Örvar setur í 21k undir byssunni og Andrés kallar í bb. Flop kemur Tc8s2h, Örvar og Andrés check-a báðir. Turn kemur 6c, Andrés checkar og Örvar bettar 25k, Andrés kallar. River kemur 6s, Andrés bettar 50k og Örvar kallar. Andrés sýnir Kc7c fyrir K high, Örvar snýr við As3s fyrir A high og tekur fínan pott.

Aðdáendahópur Ólafs
Þeir kalla sig Team Bingó og eru að fylgjast með árangri Ólafs Sigurðssonar sem þeir kalla Bingó-kúluna.


Valtýr doublar sig
Örn opnar í 23k í cutoff og Valtýr flattar á button, blindarnir folda.

Flop kemur
JsTc3h

Örn bettar 27k og Valtýr fer all-in fyrir 147k betur og eftir langt erfitt tank hjá Erni þá jafnar hann.

Örn KdTs
Valtýr KcQd

9d kemur á turn sem gefur Valtýr bestu höndina sem og þennan fína pott.

Guðmundur að narta í stakkinn hennar Ragnheiðar
Ragnheiður raisar pre í 20k og Guðmundur kallar í bb. Flop kemur 4c7sTh. Guðmundur check-ar og Ragnheiður bettar 15k og Guðmundur kallar. Turn kemur 7h. Þau check-a bæði. River kemur 3d. Guðmundur bettar 85k og Ragnheiður kallar. Guðmundur sýnir 5c6c fyrir röð og Ragnheiður sýnir KhKs.

Ragnheiður að taka stóran pott
Ég kem að borðinu á river þegar borðið er 3c4s8d9hAs og Júlíus er búinn að betta 110k og potturinn er sirka 200k fyrir. Ragnheiður hugsar sig smá um og kallar svo. Júlíus sýnir KsJh og Ragnheiður sýnir AdAc fyrir river-að sett.

Lítið að gerast
Það er ennþá verið að spila póker hérna á örkinni en menn eru farnir að vera varkárari en áður. Mikið um að raise pre taki pottinn eða þá einstaka 3-bet pre. Chips eru að skiptast á milli manna. Helstu breytingarnar á chipstökkum er að Örvar er dottinn niður í ca.400k og Valtýr er kominn yfir 800k.

Blindahækkun
Blindarnir eru komnir í 5000/10000 með 1000 í ante

Annar aðdáendahópur mættur
Valtýr varð eitthvað öfundsjúkur þegar hann sá að Ólafur var með sinn eigin aðdáendahóp að horfa á hann þannig hann hringdi í sína vini og bað þá um andlega stuðning og þær mættu nokkrir honum til handar. Eftir að þeir mættu á svæðið hefur hann byggt staflann vel upp, aðallega á kostnað Örvars.


Sirkaðir stakkar
Fyrst það er lítið að gerast í actioni í mótinu þessa stundina þá ætla ég að koma með stakka sem eru mjög slumpaðir (þeas ég svona reyndi að telja hvað hver og einn var með):

Borð 1:
Sæti 1 - Guðmundur - 850k
Sæti 2 - Júlíus - 450k
Sæti 3 - Ragnheiður - 1m
Sæti 5 - Rögnvaldur - 620k
Sæti 6 - Ólafur - 425k
Sæti 9 - Hafþór - 380k

Borð 2:
Sæti 1 - Örn - 360k
Sæti 2 - Valtýr - 850k
Sæti 3 - Óskar - 250k
Sæti 4 - Andrés - 410k
Sæti 8 - Örvar - 510k

Örn doublar
Foldað að Erni sem var búinn að tapa nokkrum pottum í röð, hann shippar all-in fyrir 170k á button og fær call frá small blind (Valtýr).

Örn 6s9s
Valtýr AsAd

Borðið rennur út Qs7dTsJsKc og Örn hittir flush til að vinna pottinn.

Menn að verða pirraðir
Það eru allir að bíða eftir að lokaborðið myndast enda eru menn búnir að vera að spila 5 eða 6 handed í að verða 4 tíma núna. Júlíus (Christian Bale) er manna pirraðastur og ég náði þessari mynd af honum inná klósetti áðan



Hléið að klárast
Taldi stakkana nákvæmlega í hléinu og hérna er þetta:
1. sæti - Ragnheiður - 981k
2. sæti - Guðmundur - 871k
3. sæti - Örvar - 667k
4. sæti - Óskar - 647k
5. sæti - Valtýr - 589k
6. sæti - Hafþór - 566k
7. sæti - Rögnvaldur - 520k
8. sæti - Ólafur - 514k
9. sæti - Andrés - 316k
10. sæti - Örn - 272k
11. sæti - Júlíus - 240k

Blindar eru núna 6k/12k, ante 1k

Eins og allt var brjálað í fyrstu levelum dagsins, er litið að gerast núna, þessi "semi" bubbla er búinn að vera mjög löng. Einn maður dottinn út á síðustu 4 tímum

Haffi veit ekkert hvað er í gangi
Haffi heldur að hann sé bb og setur 12k í pottinn (e. fisklimpar) sb complete-ar og Rögnvaldur check-ar, btw þá er Haffi ekki búinn að kíkja á höndina sína. Flop kemur 3cQsJd. Það er checkað að Haffa sem bettar 22k (ekki ennþá búinn að kíkja á höndina sína), Rögnvaldur kallar. Turn kemur Ks og þá ákveður Haffi að kíkja á höndina sína, Rögnvaldur checkar og Haffi bettar 33k og fær kall. River kemur 3h. Rögnvaldur bettar 53k inn í Haffa, Haffi fílar þetta ekki og setur 120k betur og fær kall. Haffi sýnir KdKh með nut hús og tekur stóran pott.

Andrés er dottinn út í 11. sæti
Valtýr setur í 25k utg, Andrés setur í 63k utg+2 og Örvar setur 250k í sb, Valtýr foldar og Andrés fer all-in fyrir ca. 400k og Örvar kallar. Andrés sýnir QsQd og Örvar sýnir AcKc. Borðið kemur Tc6c3s, Turnið kemur As og Andrés á eitt out en riverið blankar og Örvar kominn í 1,1m.

Lokaborðið er komið - uppröðun

1. Guðmundur Auðunn
2. Óskar Hlíðberg
3. Rögnvaldur Skúlason
4. Valtýr Björnsson
5. Ólafur Sigurðsson
6. Ragnheiður Sigurðardóttir
7. Örn Þórisson
8. Örvar Bjartmarsson
9. Hafþór Sigmundsson
10. Júlíus Jóhannesson

Fyrsta hönd á lokaborðinu
Örn setur í 29k og Örvar setur í 68k og Örn foldar, Örvar ætlar greinilega að láta fyrir sér finna enda eini á lokaborðinu sem var þar líka í fyrra.

Lokaborðið
Þegar einn spilari til viðbótar dettur út að þá er komið official lokaborð með 9 spilurum

Riverhetjan mætt enn og aftur
Örvar var að taka niður í kringum 200k pott á borði 23898 með AQ high á móti AJ high hjá Óskari. Óskar var raiserinn pre og bettaði turn og river og Örvar kallaði hann niður. Mætti segja að það væri smá ZickestRead í gangi.

Fólk er í fold-stuði
Það er mjög greinilegt að fólk er að bíða eftir því að einhver detti út, enginn áhætta tekin, það er samt einn sem er greinilega að taka þátt í flestum pottum og það er Örvar. Það var reyndar eitt ship hérna rétt áðan hjá Erni en þá voru hinir á borðinu að skoða mynd í símanum hans Valtýs, höfðu greinilega ekki mikla trú á að hann fengi kall...

Örvar að taka stæðilegan pott
Óli setur í 32k í MP, Örn kallar í CO og Örvar setur í 87k á button. Óli foldar, en Örn kallar. Flop kemur JdJc4d, Örn checkar og Örvar shippar, Örn foldar. Örvar sýnir 8d og tekur fínan pott.

3 lægstu stakkarnir
Örn - 250k
Valtýr - 360k
Júlíus - 400k

Blindar eru 8k/16k, ante 2k

Grafarþögn í síðustu hönd
Ragnheiður haltraði inn í EP og Rögnvaldur fór all-in í LP fyrir 176k total, Ragnheiður hugsaði sig um í 3-4 mínútur á meðan það ríkti grafarþögn í salnum, hún endaði á því að folda. Annars er lítið að frétta nema að Örvar er kominn í 1,3m og er efstur Ragnheiður er með rúmlega milljón fyrir framan sig.

Úrslitaborðið komið
Það kom loksins að þessu. Rögnvaldur fer allur inn í MP fyrir 214k, foldað að Örvari í sb og hann kallar. Rögnvaldur sýnir AJo en Örvar sýnir AA. Borðið hjálpar Rögnvaldi ekki og Örvar tekur hann út í 10. sæti. Örvar endaði með í kringum 1,5m í stakk. Sætaskipun og stakkastærðir koma inn á eftir.


Lokaborð myndast klukkan 01:30

Sætaskipan og staflastærðir á lokaborði Íslandsmótsins í póker 2011
Sæti 1 - Valtýr Björgvinsson - 503.000
Sæti 2 - Guðmundur Auðunn Gunnarsson - 782.000
Sæti 3 - Óskar Hlíðberg - 549.000
Sæti 4 - Örvar Bjartmarsson - 1.497.000
Sæti 5 - Hafþór Sigmundsson - 606.000
Sæti 6 - Ólafur Sigurðsson - 628.000
Sæti 7 - Ragnheiður Sigurðardóttir - 1.047.000
Sæti 8 - Júlíus Jakobsson - 329.000
Sæti 9 - Örn Þórsson - 233.000

Im not much for cards but I think these .45s beat a full houseSíðasta breyting: 07/11/2011 09:09

Hjorturkall   Iceland. Nóv 06 2011 13:03. Athugasemdir 2675

Jesús hversu vel runnar Rögnvaldur?

Og róið ykkur aðeins...,með þessu áframhaldi verður ekkert lokaborð til að spila næstu helgi - þetta mót verður búið fyrir kvöldmat...

Meina jesús - er ekki avg í kringum 80bb???

Mig hefur alltaf langað til að vitna í sjálfan mig - Ég sjálfur 

Arnorinho   Iceland. Nóv 06 2011 13:22. Athugasemdir 331

@Hjorturkall Avg. er 282k og blindar 1,5k/3k


eatyourstac   Iceland. Nóv 06 2011 13:23. Athugasemdir 1231

Ragnheiður floppar settum með því að blikka augunum

you need to try to get a head from a dude (Damon Campbell) 

eatyourstac   Iceland. Nóv 06 2011 13:31. Athugasemdir 1231

hvernig er Sindri litli ís?

you need to try to get a head from a dude (Damon Campbell) 

Arnorinho   Iceland. Nóv 06 2011 13:36. Athugasemdir 331

@eatyourstac Sindri er með 260k


luff1   Iceland. Nóv 06 2011 13:38. Athugasemdir 40

Hvernig er Hafþór Sigmunds?


Arnorinho   Iceland. Nóv 06 2011 13:51. Athugasemdir 331

@luff1 Hafþór er með ca. 200k


taqtiX   Iceland. Nóv 06 2011 15:42. Athugasemdir 1356

Skipting verðlaunafés

+ Sýna spoiler +

Im not much for cards but I think these .45s beat a full house 

jonsvv   Iceland. Nóv 06 2011 17:26. Athugasemdir 115

Ragnheiður moneymaker ?

know an ace deuce can take out your pocket broads 

Hjorturkall   Iceland. Nóv 06 2011 17:48. Athugasemdir 2675


  Þann Nóvember 06 2011 12:26 skrifaði jonsvv:
Ragnheiður moneymaker ?




Djöfull held ég með henni.

Sé fyrir einhverskonar massíft Moneymaker effect hérna þar sem heimavinnandi húsmæður taka yfir senuna og sýna öllum 19 ára internet guttunum hvernig á að gera þetta.

Mig hefur alltaf langað til að vitna í sjálfan mig - Ég sjálfur 

jonsvv   Iceland. Nóv 06 2011 17:54. Athugasemdir 115

Reyndar, fréttaumfjöllunin um póker verður vonandi jákvæð ef hún tekur þetta niður og segir sögu sína !

know an ace deuce can take out your pocket broads 

magnusvalur   Iceland. Nóv 06 2011 17:57. Athugasemdir 915

Sammála seinasta ræðumanni. Þetta mót er búið að vera frábært í alla staði (ef frátalin eru eitt river og eitt turn) og hefur heppnast vel. Reyndar fannst mér leiðinlegt að það vantaði nokkra skemmtilega spilara sem hafa sett mikinn svip á mótin 2 áður.

I hate to fold a pair 

Flexinn   Iceland. Nóv 06 2011 18:06. Athugasemdir 401

+1 Hjorturkall =)

A good ATM! 

dannih100   . Nóv 06 2011 18:23. Athugasemdir 1

áfram Örn :D


willk4   Iceland. Nóv 06 2011 18:24. Athugasemdir 1

Mitt fyrsta Íslandsmót að baki og tókst mér að komast á dag tvö sem er fín byrjun

Þetta var frábær skemmtun í alla staði og gaman að taka þátt, umgjörðin frábær og greinilega hæft fólk í öllum stöðum.

Til allra sem að þessu kom langar mig að segja takk fyrir mig

P.s ef einhver spyr þá datt steini (weirdal) út á undan mér, hann mun segja eitthvað annað en það er bara bull!

A6o UTG er ekki hendi! 

magnusvalur   Iceland. Nóv 06 2011 19:35. Athugasemdir 915

Einhver sem veit um link á live stream á lokaborðinu í wsop main event

I hate to fold a pair 

Fautinn   . Nóv 06 2011 19:45. Athugasemdir 10

Daginn pókerspilarar, langaði að henda inn smá grein hérna. Setja á réttan stað

Heiti Ingvar Ragnarsson og var að spila mitt þriðja Íslandsmeistaramót, er samt ekki að spila mjög mikið, en djöfulli er samt gaman að mæta og taka þátt. Er í Pókerklúbb sem heitir Hnetan og við erum 10 saman sem reynum að hittast mánaðarlega og tökum þá 3 mót í röð, þar sem buyin er 2000 og 3x rebuy og taka þau ca 1,5-2 tíma hvert, endamótið er 3000 kr og sama format. Tökum síðan eitt buyin af hverju móti og setjum í sjóð, höfum stigamót þar sem 1.sæti í hverju móti gefur 10 stig 2.sæti 5 stig og 3 sæti 3 stig.

Eftir árið þá sést hvað mikill peningur er kominn inn og þá er 1 eða 2 aðilar sem fara frítt á Íslandsmótið. Í ár komumst 2 "frítt" inn, því á síðasta ári 2010 áttum við 2 aðila á lokaborðinu Daníel Rodriques og Baldvin Samúelsson og Daníel endaði í ágætis pening sem gaf klúbbnum 30% af vinningsfénu. Því gátu 2 farið frítt í ár.
Fórum samt 6 saman af hópnum.

2 duttu út á fyrsta degi, Tommi og Daníel, á laugardegi duttu út Gísli Willk4 og Steini (WeirdAl) eða atvinnumaðurinn eins og við köllum hann duttu báðir út á KK vs 88 á svipuðum tíma þar sem báðir mótherjar lentu á setti. Baldvin Samúelsson datt út næst líka með KK þar sem mótherjinn runnaði á röð. Ég endaði síðastur á móti Daníel Már þar sem hann tók mig út, ég með open ended og lítinn stakk og hann með stakkinn sinn hikaði ekki við að kalla (að sjálfsögðu) og paraði J.

Sá Íslandsmeistarann frá í fyrra sem tók mig út þá í 33 sæti. Þar sást hvað menn þurfa að hitta vel. Við lentum á degi 2 í fyrra með svipaðan stakk, hann með nokkrum chipsum fleira. Ég með A9 í spaða minnir mig, flopp 2 spaðar og endum Allin, hann sýnir K4 í spaða eða svipað, mótið búið - hann turnar K og mótið búið hjá mér Svona gerist þetta og það fylgir þessu.

Persónulega finnst mér alltaf jafnfyndið þegar menn missa sig við að tapa potti/móti við að einhver dragi hann út, það eru 5 spil í borði og þegar þau eru ekki öll komin, getur allt gerst!

Íslandsmótið í ár var mjög fínt og vel skipulagt, Steini mótstjóri og hans crew eru frábær og hvernig Steini dæmdi td eina ákvörðun á mínu borði var til fyrirmyndar, aðili hækkar, annar kallar..enginn tók eftir að aðilinn á milli þeirra fór Allin, en díler tók spilin hans í millitíðinni. Steini kom og hugsaði vel og lengi og Allin þurfti að setja sama raise inn og fékk rest af chipsum tilbaka, kom svo í ljós að hann hefði dottið út ef hefði verið inni. Allir sáttir.

Veit ekki með aðra en ég fór á Hlaðborðið uppi á föstudeginum og var með pípandi fram eftir hádegi á laugardegi. Kominn á töflur og allez.

Með að hafa lokaborðið viku síðar er svona 50/50 finnst mér. Vont fyrir þá sem búa langt út á landi en ef ég væri í sömu stöðu, myndi ég láta mig hafa það að mæta viku síðar fyrir lokamót. Væri samt flott að reyna að láta það enda á sunnudagskveldi, margir ennþá á Hótel Örk og væru til í að bíða og sjá þetta klárast, væri hægt að útbúa sal td útaf TV og hafa allt klárt.

En annars þakka ég fyrir mig og fyrir hönd Klúbbsins Hnetunnar "The Nuts" og sjáumst að ári liðnu.

ps. vann samt Sidebet - Last longest - eða 5.000 á hvern af okkur = 25.000 í vasann fyrir það.

bkv. Ingvar


maggnus   . Nóv 06 2011 19:50. Athugasemdir 73

http://www.wsop.com/2011/live-video/ það á að koma hérna


bman   . Nóv 06 2011 20:01. Athugasemdir 163

Vonum að þessi Örvar taki þetta niður. Þegar ég dett í mót uppá gullöld þá lætur hann mig alltaf finna fyrir köldum svita á bakinu með 3bettunum sínum.

stundum þurfa menn bara að grinda sig í gegnum tárin 

 
 1 
  2 
  > 
  Allt 


Höfundaréttur © 2012. 52.is Allur réttur áskilinn
Hafa samband Leiðarvísir