http://www.52.is/


LP international Poland latinoamerica Iceland    Hafa samband            Notendur: 26 Virkir, 9 Skráðir inn - Klukkan er: 15:01

Íslandsmótið í Póker 2011-Dagur 2 bein textalýsing

Nýr á 52.is? Skráðu þig hér, ókeypis!
Forsíða spjallborðs > Póker fréttir
leos147   Iceland. Nóv 05 2011 11:34. Athugasemdir 2154



Dagur tvö á Íslandsmótinu í Póker fer að byrja innan skamms og við erum að vinna í að klára að undirbúa komu spilarana. Dagur eitt fór mjög vel og gekk allt smurt mest allann tímann.

Á degi tvö byrjuðu 144 spilarar á 16 borðum og verður spilað frá 12:00 til 00:00.

Hérna fyrir neðan mun vera bein textalýsing sem við vinnum örrugglega eitthvað saman í að setja inn.

Blindastructure-ið fyrir dag 2


Bein textalýsing

11:49 - Fjölmennt í salnum
Góður hópur spilara eru búnir að koma sér fyrir í salnum og munum við starta eftir tíu mínútur.

12:01 - Mótið er hafið á ný
Blindar eru í 250/500 með 50 ante, meðal staflinn er aðeins yfir 40þ.

12:10 - Guðjón Heiðar all in á móti Eirný
Guðjón er allur inn með QcQh á móti ThTd hjá Eirný, borðið rennur út og Guðjón tekur fínan 27k pott.

12:13 - Mikið action
Kem að borðinu þegar það er kallað river all in á AsJd5c5sTc borði uppá 10þ. AcJh sýnt sem tekur góðann 50þ. pott og það er leikmaður út.

12:15 - ViktorAk í hendi
Borðið er Qc8h9c6d8s og Viktor setur út 3þ. bet sem er nóg til þess að taka pottinn sem var um 6þ.

12:20 - Örvar all in
Örvar opnar í 1,050 pre og það er hækkun í 3,500 og eitt kall, Örvar fer þá all in fyrir 19þ. og það folda allir og Örvar tekur pottinn og sýnir As og glottir.

12:25 - Davíð Ólafs tekur fínan pott
Borðið er 3cQsKh5dJd þegar ég kem að borðinu og það er bettað 12,600 inní Davíð sem hugsar sig aðeins um og kallar með AsAc og tekur pott uppá um 50þ. á móti AcKd.

12:36 - Steinar Snær tekur gott kall.
Borðið er 5s4c6c2cQs og það er 8,400 bett til Steinars sem hugsar lengi og kallar síðan með AsQc og vinnur 29þ. pott.

12:40 - Andri Zigslick í potti
Borðið er 7s5c8h og potturinn er 6þ.
Andri bettar 3,700 og enginn sýndi honum mótstöðu og hann tekur pottinn.

12:44 - Garri í potti móti Davíð
Borðið er 2c2h2d og potturinn er 13þ.
Það eru þrír í pottinum og þar á meðal Garri, allir checka á floppi.

Turn kemur 9c, og Davíð bettar 3,500 og Garri hækkar það í 11,100, Davíð hugsar aðeins og kallar síðan.

River er 4d og bæði Garri go Davíð checka.
Davíð sýnir 8s9s, Garri muckar og Davíð tekur góðann 35þ. pott.

12:50 - Guðjón Heiðar út
Borðið er Qc5d3s - 2h
Guðjón endar all in á turn með AcAs á móti QcJh í 50þ. potti.

River kemur Jh og sendir Guðjón útúr mótinu.

12:58 - Kjartan Bergur tekur risastórann pott
Kjartan er með KcTc á floppinu 9sQcJc og endar allur inn á móti 8sTh og QhQs.

Kjartan heldur og tekur niður pott sem var vel yfir 100þ.


Rögnvaldur Skúlason er núverandi chipleader með 230þ. stafla.

13:20 - Myndir
+ Sýna spoiler +



13:34 - Lúlli (Liverbird) tekur tvo út með ásum
Allt fer inn fyrir floppið og sýnir Lúlli AcAh og hann er á móti AsKs og ó þekktri hendi og Lúlli heldur og kemst með þessu uppí 115þ. stafla.

13:35 - Tuttugu dottnir út á degi tvö
Það eru tuttugu dottnir út einsog staðan er núna á degi 2. Þetta kemur mörgum á óvart fyrst að þetta er mjög djúpt mót.

13:37 - Íslandsmeistarinn dottinn út
Stefán var rétt í þessu að detta út á móti Trausta Björgvins.

Stefán reisar fyrir floppið í 1,500 og fær 5 köll.
Floppið kemur Ks8c7c

Stefán bettar 1,800 á floppi enn ætlaði að betta meira og fær tvö köll

Turn kemur 9d, Stefán bettar 7,500 og Trausti setur hann all in fyrir 12,500 meir og Stefán kallar og sýnir 8h8s fyrir áttusett enn Trausti sýnir 6hTh fyrir röðina. Riverið er blank og Stefán er dottinn út á degi tvö.

13:55 - Stafla update hjá nokkrum

Danni - 160k
Sævar - 36k
Einar - 20k
Ottó Marwin - 34k
Alli - 46k
Örvar - 18k
Rögnvaldur - 230k
Arnór Freyr - 24k
Hlynur Sverrisson - 25k
Garri - 92,5k

13:59 - Hákon vinnur goóðan all in pott
Það er all in fyrir floppið og Hákon er með 4c4h á móti AsJh, borðið rennur út og Hákoin vinnur fínan 40k pott.

14:05 - Staða eftir tveggja tíma spil
Það eru nú 37 manns dottnir út á degi tvö!
Blindar eru nú 300/600 ante 75 og meðal stakkastærðin er 58þ.
Blindarnir hækka eftir 25 mínútur.

14:33 - Pása
Komin pása svo fólk geti farið að fá sér aðeins að éta.

14:48 - Pása að klárast
Pása að verða búin og það er verið að taka alla 25kr chippana út úr mótinu. Næsta level verður 400/800 100 ante.

note: Maggi Bö tekur fljótt við af mér.

15:06 - Einar "Taqtix" dottin út
Einar átti bara 200 eftir að hafa tapað stórri hendi á móti Arnóri.
Lokahönd Einars var 7c2c, floppið var 2h4cJc, Arnór Tvíburi einangrar Einar og sýnir kóngapar.
Einar er sprelllifandi með 13 útspil. Einar hittir ekki og dettur út. Arnór fagnar óhóflega miðað við stærð pottsins.

Það eru 98 spilarar eftir í Íslandsmótinu.

15:17 - Garðar Þormar dottinn út.
Er ekki viss enn samkvæmt sögusögnum þá runnaði Garðar í hús hjá Danna Má á turni í 130þ. potti. Danni Már er líklega chipleader með 290þ.

15:45 - Arnór Freyr út
Arnór fer all in með AcTh og er kallaður af KcJh og tapar þegar kóngur kemur á floppi.

Fleiri myndir
+ Sýna spoiler +



16:09 - Þórir President allur
3 way allin fyrir flopp. AcKs vs KcKhvs QhQd.
Kóngarnir halda og Þórir er út með AcKs.

16:15
Nú eru 85 spilarar eftir baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn.
Level 500/1000 er í gangi og meðalstafli er er 72,2K.

16:23
Baldvin Samúels allur með KK vs 88 á 7 high borði. Átturnar bökkuðu í röð á river þar sem allt fór í miðjuna.

16: 58 - Valdís tvöfaldar sig
Valdís tekur fínan pott sem endar allin á floppi sem sýnir 6h2h8h. Valdís sýnir 9hTh á móti QhQs hjá Garðari Geir. Borðið rennur út og Valdís tvöfaldar sig og er kominn í 85K.

17:10 - Random chipcount
Himmi Legend 185K
Máni 110K
Örvar 110K
Hrannar Hallgríms 60K
Hafþór Sig 90K
Ragnheiður Sig 270K
Eirný 80K
Davíð Þorláks 120K
Þórhallur Gísla 85K
Kjartan Bergur 90K
Hafþór Gylfi 23K
Logi Unnarsson Jónsson 55K
Daníel Már 250K
Lúðvík Kemp 90K
Sævar Ingi 80K
Ottó Marwin 30K
Eiríkur Garðar 140K
Andri Zig 110K
Diddi Hverfis 70K
Rögnvaldur Skúlason 310K (Chipleader)
Garðar Geir 45K

17:25 - Kjartan Bergur tvöfaldar sig
Kjartan hrindir inn 11k og Logi kallar í cutoff. Kjartan á Ks.Tc. og Logi sýniKd.Qc.. Flopp 2dJsTdTurn Ts river 7d.

17:29 - Danni tekur spilara út
Ingvar er allur. Hann shippar á 3h5cJc floppi. Danni Már kallar og button kallar Turn Ac og Danni og button checka niður á river sem er blank. Danni sýnir JhTc og button muckar og Ingvar muckar líka og segist hafa verið open ended. Danni tekur þarna um 80K pott.

17:44 - Hléi lýkur
Spilarar eru að koma sér fyrir aftur eftir 15 mín pásu. Það eru 73 spilarar eftir í mótinu. Level 600/1200 ante 100 er að fara að byrja. Meðal stafli er 85k.

17:54 Garri syngur sitt síðasta
Garðar Geir opnar í 3k og Ágúst Páll í hijack shippar 29k með AcKs. Garri kallar og sýnir TcTd. Kóngur á floppi og turn og river er blank. Garri er cripplaður eftir þessa hendi og er auto allin í big blind næstu hönd þar sem hann dettur út.

18:11 - Sindri ís að dobbla sig
Pakkað til Aðalsteins í MP sem að hækkar og fær köll frá Sindra, Himma og Sævaldi.

Floppið kemur: Kc8c4s

Aðalsteinn skýtur 5.500 -Sindri kallar og Sævaldur kallar.

Turn kemur 3h

Aðalsteinn neglir aftur 13.000.

Sindri tilkynnir að hann sé allur inn fyrir 21.500. Sævaldur pakkar og Aðalsteinn kallar.

Sindri sýnir 8d8h - Sævaldur sýnir AcAs

Turn kemur blank og Sindri dobblar sig upp og kominn í ca 80þ.

I just click buttonsSíðasta breyting: 05/11/2011 18:33

Birkirg   . Nóv 05 2011 14:19. Athugasemdir 763


  13:37 - Íslandsmeistarinn dottinn út



Hann velur sér tímasetninguna!

Got grind on my mind..Síðasta breyting: 05/11/2011 14:19

Tommy Gavin   Iceland. Nóv 05 2011 14:56. Athugasemdir 33

Flottur tími til að detta út hann nær enska boltanum kl. 15:00


Joeflow   . Nóv 05 2011 17:53. Athugasemdir 60


  Þann Nóvember 05 2011 09:56 skrifaði Tommy Gavin:
Flottur tími til að detta út hann nær enska boltanum kl. 15:00



not sure if you got it


leos147   Iceland. Nóv 05 2011 18:01. Athugasemdir 2154

Endilega setjið komment ef þið viljið updates af einhverjum sérstökum spilara eða vantar einhverjar upplýsingar.

I just click buttons 

Hjorturkall   Iceland. Nóv 05 2011 18:19. Athugasemdir 2675

Var einhverstaðar kominn inn paystrúktúr?

Mig hefur alltaf langað til að vitna í sjálfan mig - Ég sjálfur 

Steini   Iceland. Nóv 05 2011 18:25. Athugasemdir 617


  Þann Nóvember 05 2011 13:19 skrifaði Hjorturkall:
Var einhverstaðar kominn inn paystrúktúr?



http://www.52.is/frettir/29215/%C3%8D...C3%B3t_-_Uppl%C3%BDsingar_fyrir_dag_2

Það er + EV að segja vinnunni að fokka sér ef þú átt séns að fokka í fallegri konu - orionice 

arngrimsson   Iceland. Nóv 05 2011 21:42. Athugasemdir 390


  Þann Nóvember 05 2011 09:19 skrifaði Birkirg:
Show nested quote +



Hann velur sér tímasetninguna!


Góður þessi


 


Höfundaréttur © 2012. 52.is Allur réttur áskilinn
Hafa samband Leiðarvísir