http://www.52.is/


LP international Poland Belgie Brasil latinoamerica France Iceland    Hafa samband            Notendur: 32 Virkir, 13 Skráðir inn - Klukkan er: 16:06

Íslandsmót Pókersambands Íslands


Nýr á 52.is? Skráðu þig hér, ókeypis!

Forsíða spjallborðs > Póker fréttir
 1 
  2 
  > 
  Allt 
Pokersamband   . Júl 28 2010 13:11. Athugasemdir 19

Íslandsmót Pókersambands Íslands fer fram helgina 15-17 Október á Hótel Örk í Hveragerði. Buyin er 60.000 kr og fjöldi undanmóta verður haldið út um land allt.

Mótið byrjar kl 20 á Föstudagskvöldinu 15 Október

Þess má geta að við munum keppast við að hafa engar takmarkanir á fjölda keppenda, síðast voru 191 keppendur. Held það sé ljóst að yfir 200 manns tekur þátt að þessu sinni.

Erum að ath með leyfismál osfrv og nánari upplýsingar um það síðar.

Við viljum endilega biðja alla pókerklúbba landsins sem hafa áhuga á að halda undanmót/Satellites að senda mail á pokersamband@pokersamband.is

Ef einhverjir sjálfboðaliðar geta hugsað sér að aðstoða í kring um mótið
þá væri gott að heyra af ykkur fljótlega




 Síðasta breyting: 28/07/2010 13:12

dunkindonk   . Júl 28 2010 14:31. Athugasemdir 20

Mér finnst 60 þúsund of hátt. Hefði verið betra að hafa þetta eins og í fyrra bara.

Hveragerði er FAIL!


viktorak   Iceland. Júl 28 2010 14:43. Athugasemdir 843


  Þann Júlí 28 2010 09:31 skrifaði dunkindonk:
Mér finnst 60 þúsund of hátt. Hefði verið betra að hafa þetta eins og í fyrra bara.

Hveragerði er FAIL!



Er ekki eitthvað meira sem hægt er að kvarta yfir?

Fínt að hafa þetta í Hveragerði þar sem að þetta er hugsað sem Pókerhelgi en ekki bara eitt mót og fínt að gista í nokkrar nætur á hótelinu og spila póker!

Svo er stutt í Hveragerði þannig að margir geta bara skellt sér þangað í póker án þess að festast þar alla helgina!

Það að buy-inið hækki er eðlileg þróun fyrir íslandsmótið að mínu mati. Það munu að sjálfsögðu langflestir ná að "satta" sig inn fyrir þann pening og það mun ekki hafa í för með sér færri miði í satellites heldur mun buy-in í satellite-in hækka um svona 1-2.000kr og þá mun sami fjöldi spilara vinna sér inn miða eins og inn í 40.000kr mót!

Því miður er ekki hægt að gera öllum til geðs varðandi buy-in en 60.000kr er sanngjarnt verð að flestra mati og heil pókerhelgi er eitthvað sem hefur vantað á Íslandi til að gera pókermenninguna aðeins meira "grand"

Lays down a monster. The fuck did you lay that down?  

HaukurMar   Iceland. Júl 28 2010 14:44. Athugasemdir 277

60k er fínt mar, strax farinn að hlakka til

Er alveg að fíla Hveragerði, gaman að taka svona helgi á þetta bara

Im not much of a praying man but if youre up there ...please help me superman!Síðasta breyting: 28/07/2010 14:46

dunkindonk   . Júl 28 2010 14:55. Athugasemdir 20


  Þann Júlí 28 2010 09:43 skrifaði viktorak:
Show nested quote +



Er ekki eitthvað meira sem hægt er að kvarta yfir?

Fínt að hafa þetta í Hveragerði þar sem að þetta er hugsað sem Pókerhelgi en ekki bara eitt mót og fínt að gista í nokkrar nætur á hótelinu og spila póker!

Svo er stutt í Hveragerði þannig að margir geta bara skellt sér þangað í póker án þess að festast þar alla helgina!

Það að buy-inið hækki er eðlileg þróun fyrir íslandsmótið að mínu mati. Það munu að sjálfsögðu langflestir ná að "satta" sig inn fyrir þann pening og það mun ekki hafa í för með sér færri miði í satellites heldur mun buy-in í satellite-in hækka um svona 1-2.000kr og þá mun sami fjöldi spilara vinna sér inn miða eins og inn í 40.000kr mót!

Því miður er ekki hægt að gera öllum til geðs varðandi buy-in en 60.000kr er sanngjarnt verð að flestra mati og heil pókerhelgi er eitthvað sem hefur vantað á Íslandi til að gera pókermenninguna aðeins meira "grand"



Þetta er einmitt eitthvað sem kæmi aðeins frá einhleypum, barnlausum karlmanni. Sem reyndar virðist vera markhópurinn sem verið er að leitast eftir að spili.

Jújú, þetta gæti verið verra svo sem en gæti einnig verið betra en ég ætla ekki að missa svefn yfir þessu.


hrannarmar   . Júl 28 2010 14:59. Athugasemdir 69

Það er fínt að hafa þetta í Hveragerði, taka á leigu bústað og skella sér í Eden í pásunni-gerist varla betra. Það mætti reyndar vera tivoli enn í Hveragerði en það er spurning um að skella upp einum hoppukatala fyrir þá sem að þurfa að steama.


Valdegg   . Júl 28 2010 15:28. Athugasemdir 391

Verður rake + skattlagning eins og í fyrra?


viktorak   Iceland. Júl 28 2010 15:38. Athugasemdir 843


  Þann Júlí 28 2010 10:28 skrifaði Valdegg:
Verður rake + skattlagning eins og í fyrra?



Það verður rake, skattlagningin er þitt að borga og græja, ekki pokersambandsins, ef að þú vinnur pening í póker þá er það þitt að gefa það upp til skatts og borga það, ekkert sem pókersambandið getur gert í þeim málum, svo er aftur á móti allt annað mál hvort að það eigi að borga skatt af pókervinningum yfir höfuð en við skulum ekki færa þessa umræðu yfir í það!

Lays down a monster. The fuck did you lay that down?  

HaukurMar   Iceland. Júl 28 2010 16:17. Athugasemdir 277

dunkidonk: er einhver biturleiki í þessu hjá þér?

Svo er náttúrulega eins og Viktor sagði, þetta er nú ekki nema 50km frá Reykjavík þannig það er nú ekki langt að fara fyrst þú ert að fara spila á annað borð, þarft ekkert að gista ef að yfirvaldið bannar þér það.

Im not much of a praying man but if youre up there ...please help me superman! 

dunkindonk   . Júl 28 2010 16:22. Athugasemdir 20

Nei en ég vinn þetta mót skilurðu þannig að þetta kostar brottför snemma og heimkoma um nótt

A mínu heimili þarf ekki leyfi en þetta er bara smá ,,vesen"


Hjorturkall   Iceland. Júl 28 2010 16:35. Athugasemdir 2018

Þetta er glæsilegasta mál...


Held það sé nokk gefið að salur f. 200+ manns yfir heila helgi er talsvert ódýrari í Hveragerði en í bænum...

Eins ætti að skapast frábær stemming ef það verður e-h fjöldi sem tekur þetta eins og keppnisferðalag og crashar á hótelinu - fínt að gista þar.


Er verið að stefna á 3 daga mót eða lokaborð helgina eftir?


Ég hugsa ég hefði samt helst viljað sjá 100k+ rake í buyin og hafa sama strúktúr og á WSOP...en maður fær ekki allt

Held enn í vonina með WSOP strúktúrinn (30k stack, 2tíma blinds)

Mig hefur alltaf langað til að vitna í sjálfan mig - Ég sjálfur 

HaukurMar   Iceland. Júl 28 2010 19:13. Athugasemdir 277

Sammála þér Hjörtur með stemningsferð, veit samt ekki alveg með 100k+, það er full dýrt, gæti kannski virkað eftir nokkur ár þegar pókerinn er kominn enn meira á skrið, held að 60k sé fínt núna.

Im not much of a praying man but if youre up there ...please help me superman! 

DFRNT   Denmark. Júl 28 2010 20:16. Athugasemdir 77

Verður þetta ekki klárað sömu helgina örugglega? Verð á landinu í skammann tíma og væri gaman að kíkja
Og við hvern á maður að tala ef ég kaupi mig beint inn?


BlackDeck   Iceland. Júl 28 2010 21:40. Athugasemdir 139

Persónulega finnst mér þetta goooooodshit og ég ætla að hjóla í það strax að bóka mér herbergi þarna á hótelinu. Held að þetta geti orðið geðveik ferð og í raun bara "árshátíð" hjá íslenskum pókerspilurum. Vona bara að það verði nóg af side games fyrir okkur sem donkum okkur strax úr mótinu Buy-inið er fullkomin upphæð að mínu mati og ég á ekki von á því að það verði færri heldur en í fyrra, fleiri ef eitthvað er.

Þetta er bara klink fyrir Didda Kriss 

orionice   . Júl 28 2010 22:11. Athugasemdir 262

Mótið verður klárað yfir helgina, á sunnudeginum

Varðandi gistingu þá erum við með tilboð frá Hótel Örk :

9.900 kr nóttin með 3 rétta máltíð fyrir einstakling í 2 manna herbergi. (19.800 kr Herbergið m/3 rétta fyrir 2)
Legg til að menn spyrði sig saman

Held það sé 12.500 kr nóttin fyrir einstaklings herbergi með 3 rétta máltíð

Höfum allavega eh 30 herbergi á þessu tilboði svo fyrstir koma fyrstir fá,
þeir sem hafa áhuga sendið á pokersamband@pokersamband.is

Varðandi Buyin þá er með þessu reynt að fara bil beggja fylkinga, margir sem vildu hækka umtalsvert en til þess að gera
þetta sem veglegast þá verðum við að hækka buyin... Fjöldi satelllites verður stóraukin á móti þessu !

Þetta er líka nákvæmlega hugsað sem nokkurskonar árshátíð spilara, menn hittist og það verði smá stemmning í kring um þetta


orionice   . Júl 28 2010 22:14. Athugasemdir 262

Það tekur líka bara 25-30 mínútur að keyra til Hveragerðis, þetta er enginn tími og menn verða oftast nær komnir heim
i kvöldmat, þeir sem þurfa að sinna fjölskyldu osfrv


nICENUTs   Iceland. Júl 28 2010 23:10. Athugasemdir 999

like!!

Var að enda við að semja við frúnna að fresta væntanlegri skírn yfir á helgina eftir þetta

Ekki er búið að smíða einhvern struktúr fyrir þetta? ca. hvenær á að hefja leik hvern dag og hvenær búið??
Þægilegt fyrir okkur fjölskyldufólkið

nICENUTs, do you consider yourself a nit or a gambler? 

TeSpartan   Iceland. Júl 28 2010 23:21. Athugasemdir 573


  Þann Júlí 28 2010 11:22 skrifaði dunkindonk:
Nei en ég vinn þetta mót skilurðu þannig að þetta kostar brottför snemma og heimkoma um nótt

A mínu heimili þarf ekki leyfi en þetta er bara smá ,,vesen"





 Síðasta breyting: 28/07/2010 23:23

Liverbird21   . Júl 28 2010 23:24. Athugasemdir 299

Þetta verður awesome helgi. Vona að það mæti 200+ á þetta.


orionice   . Júl 29 2010 00:09. Athugasemdir 262

Gróft útreiknað varðandi spilamennsku, ath ALLS ekki heilagar tölur

Föstud 15/10 = 20-24
Lau 16/10 = 12-21
Sun 17/10 = 13-?

Laugardag kl 16.00 verður líklegast einhverskonar aukamót, t.d 3k Rebuy eða
6-10k Freezout.. hvað finnst ykkur ?


 
 1 
  2 
  > 
  Allt 


















Höfundaréttur © 2010. LiquidPoker.net Allur réttur áskilinn
Hafa samband Leiðarvísir